Jón Páll hefði orðið 60 ára í dag: „Þú varst yndis­legur pabbi“

Jón Páll Sig­mars­son, ein­hver þekktasti í­þrótta­maður í sögu ís­lensku þjóðarinnar, hefði orðið sex­tugur í dag, 28. apríl. Jón Páll lést þann 16. janúar 1993, 32 ára að aldri.

Sig­mar Freyr Jóns­son, sonur Jóns Páls, minnist föður síns með fal­legum orðum á Face­book-síðu sinni. Hann veitti Hring­braut góð­fús­legt leyfi til að birta færsluna.

„Mikið hefði það verið gott og gaman að hafa þig að­eins lengur hérna hjá okkur,“ segir Sig­mar í færslunni og bætir við að sem barn hafi verið magnað að eiga Jón Pál sem pabba.

„Ég man eftir að horfa á He-Man heima hjá þér á Fram­nes­veginum og líta svo á þig og sjá að þið voruð bara alveg eins. Ofur­hetjur voru teiknaðar eins og þú varst í al­vörunni.“

Hann segir að eins gaman og það hafi verið að eiga pabba sem var ofur­hetja hafi stundirnar sem þeir feðgar áttu saman verið ó­gleyman­legar. „Þú varst yndis­legur pabbi, kær­leiks­ríkur, kíminn og stríðinn. Ég á ekkert nema góðar minningar af þér elsku pabbi minn og megi minning þín lifa um ó­komin ár.“

Jón Páll er af mörgum talinn einn sterkasti maður sögunnar. Hann var fyrsti maðurinn til að hljóta titilinn Sterkasti maður heims í fjór­gang. Keppnirnar vann hann árin 1984, 1986, 1988 og 1990. Þess á milli var hann á­vallt í einu af efstu sætunum.

Jón Páll fæddist í Hafnar­firði þann 28. apríl árið 1960 og æfði hann meðal annars knatt­spyrnu, hand­bolta og hlaup sem barn. Hann hóf keppnis­feril sinn í afl­raunum árið 1979 og vann hann til ó­fárra verð­launa á ferli sínum, bæði hér heima og er­lendis. Jón Páll var valinn í­þrótta­maður ársins árið 1981.