Jón Óttar Ólafsson, starfsmaður Samherja og fyrrverandi rannsóknarlögreglumaður, hefur beðið Helga Seljan, fréttamann RÚV, afsökunar á skilaboðum sem hann hefur sent honum að undanförnu.
Kjarninnfjallaði um skilaboðin í gær sem og tíðar heimsóknir Jóns Óttars á Kaffifélagið í miðborg Reykjavíkur þar sem Helgi er einnig tíður gestur. Sagðist Helgi telja að tilgangur Jóns Óttars hafi verið að hræða hann eða ógna honum.
Sjá einnig: Birta SMS sem Helgi Seljan hefur fengið: „Morgundagurinn verður erfiður, trúðu mér“
Jón Óttar sendi Kjarnanum yfirlýsingu í gærkvöldi þar sem hann segist hafa sýnt dómgreindarbrest.
„Það var rangt af mér að senda umrædd skilaboð, þau endurspegla dómgreindarbrest af minni hálfu og ég sé mikið eftir því að hafa sent þau. Ég vil nota þetta tækifæri til þess að biðja Helga Seljan afsökunar á þessum sendingum.“
Jón Óttar segist hafa verið undir miklu álagi að undanförnu en hann segist þó ekki ætla að réttlæta sendingarnar með því. Þá segist hann ekki hafa farið á Kaffifélagið til að elta Helga, heldur hafi hann verið viðskiptavinur kaffihússins í mörg ár.
„Eins og greint hefur verið frá í fjölmiðlum hef ég sinnt ráðgjöf fyrir Samherja hf. sem verktaki. Tekið skal fram að stjórnendur félagsins höfðu ekki vitneskju um skilaboð mín til Helga. Mér finnst miður ef þessi gagnrýniverða háttsemi mín verði á einhvern hátt bendluð við félagið og starfsfólk þess því hún er alfarið á mína ábyrgð.“