„Íslendingar skilja almennt ekki verðmæti hreins vatns, ólíkt mörgum öðrum þjóðum. Við sturtum niður gæðavatni í klósettið okkar. Pældu í því. Hver gerir það annar en við? Enginn!“
Þetta segir Jón Ólafsson, stofnandi og stjórnarformaður vatnsátöppunarfyrirtækisins Icelandic Water Holdings sem á vörumerkið Icelandic Glacial sem margir þekkja. Jón er í athyglisverðu viðtali í Markaðnum sem fylgir Fréttablaðinu í dag.
Í viðtalinu kemur meðal annars fram að tekjur fyrirtækisins muni vaxa um tvær milljónir Bandaríkjadala í ár í heimsfaraldrinum sem nú geisar. Icelandic Glacial er fjórða söluhæsta gæðavatnið í Bandaríkjunum en fyrirtækið sem rekur verksmiðju í Ölfusi, var stofnað árið 2004.
Jón er bjartsýnn á framtíð fyrirtækisins og þegar hann er spurður hvernig hann sér fyrirtækið eftir tíu ár stendur ekki á svörum. „Ég held að Icelandic Glacial verði eitt af þekktustu vatnsvörumerkjum í heimi. Ég efast ekki um það. Svo er annað mál hvort ég verði enn starfandi hjá fyrirtækinu á þeim tíma.“
Jón segir þó að verkefnið hafi ekki alltaf verið auðvelt, en meðal helstu samkeppnisaðila eru risafyrirtæki á borð við Fiji, Evian, Coke og Pepsi.
„Ef ég hefði vitað það sem ég veit í dag áður en fór af stað í þessa vegferð hefði ég aldrei lagt af stað. Ekki til í dæminu. Þetta er ekki fær vegur. Áður en fyrirtækið var stofnað skoðuðum við feðgarnir (Jón stofnaði fyrirtækið ásamt Kristjáni syni sínum) allt. Nema hvað ég gleymdi að rýna í hverjir keppinautarnir eru. Það eru risafyrirtæki á borð við Pepsi, Coke og Fiji. Við erum sem sagt að byggja upp vörumerki í samkeppni við alþjóðleg stórfyrirtæki.“
Athygli vekur í viðtalinu að Jón segir að íslenskir bankar hafi aldrei viljað snerta við fyrirtækinu.
„Þeir hafa ekki trú á útflutningi á vatni. Skilja ekki reksturinn. Íslendingar skilja almennt ekki verðmæti hreins vatns, ólíkt mörgum öðrum þjóðum. Við sturtum niður gæðavatni í klósettið okkar. Pældu í því. Hver gerir það annar en við? Enginn!“
Hér má lesa viðtalið við Jón í heild sinni.