Jón Óðinn Waage, leiðbeinandi barna með hegðunarvandamál og fyrrverandi júdóþjálfari, er í hópi skemmtilegustu pistlahöfunda landsins. Jón Óðinn hefur verið búsettur í Svíþjóð um nokkurra ára skeið og hafa pistlar hans birst á vefnum Akureyri.net.
Í nýjasta pistli sínum, sem birtist fyrir skemmstu, varpar hann ljósi á það hvað Svíum finnst raunverulega um Íslendinga.
Jón Óðinn dregur ekki fjöður yfir það að það sé gott að vera Íslendingur í Svíþjóð, en þar hefur hann búið undanfarin sex ár.
„Svíum þykir afar vænt um Íslendinga, við erum litli krúttlegi ættinginn. Svíum þykir svo vænt um Ísland að þeir vilja ekki heyra neitt slæmt um landið; þegar ég segir þeim frá verðtryggingu, Panamareikningum og hruni þá vilja þeir ekki hlusta,“ segir hann.
Hann segir að Svíar í raun elski land og þjóð; þeir verði gjarnan orðlausir þegar sjá myndir af fegurð íslands og þegar Ísland er með á stórmótum í íþróttum haldi Svíar með okkur.
Jón Óðinn bendir einnig á að hann hafi starfað í líkamsræktarstöð í Svíþjóð og notað íslenska tónlist í tímunum sínum. Svíarnir, skjólstæðingar hans í tímunum. hafi verið hrifnir af því hversu margir góðir tónlistarmenn kæmu frá Íslandi.
Jón Óðinn segir einnig í pistli sínum að á þeim sex árum sem liðin eru frá því að hann flutti til Svíþjóðar hafi hann bara tvisvar komið í stuttar heimsóknir til landsins. Af skrifum hans að dæma saknar hann sinna heimahaga nokkuð þó vel fari um hann í Svíþjóð. Hann hafi til dæmis ekki séð fegurðina við Ísland fyrr en hann flutti frá landinu – eitthvað sem eflaust fleiri brottfluttir Íslendingar kannast við.