Jón miður sín eftir ömurlegt símtal: „Ég bara spyr: Er þetta í lagi?“

„Ég var eflaust óvenju viðkvæmur þennan dag, en ég bara spyr: Er þetta í lagi?,“ segir Jón Sigmar Sigmarsson, fimmtugur íbúi á Borgarfirði eystra, í samtali við Fréttablaðið í dag.

Jón Sigmar segir farir sínar ekki sléttar eftir að hafa fengið símtal frá konu á dögunum sem sagðist vera að safna fé fyrir Umhyggju, félag langveikra barna. Fyrr þennan sama dag hafði Jón orðið fyrir þeirri reynslu að missa eiginkonu sína vegna veikinda.

Í frétt Fréttablaðsins kemur fram að konan hafi verið ókunnug persónulegum aðstæðum Jóns Sigmars og tilkynnt henni að ekki stæði vel á þar sem hann hefði misst eiginkonu sína um morguninn. Þrátt fyrir það hefði konan ekki gefið sig og haldið áfram að reyna að fá Jón til að láta fé af hendi rakna.

„Mér finnst þetta alls ekki í lagi. Það virðist sem þessi góðgerðasamtök séu með verktaka í vinnu á prósentu, tengdri innkomu. Þetta er ömurlegt tillitsleysi og ægileg frekja,“ segir Jón við Fréttablaðið. Jón segir að honum hafi verið nóg boðið og skellt á þegar konan spurði hann hvort hann vildi ekki greiða eina þrjú þúsund króna eingreiðslu.

Árný Ingvarsdóttir, framkvæmdastýra Umhyggju, brást hart við þegar Fréttablaðið leitaði viðbragða.

„Ef rétt er að þetta tengist okkur og þeim aðilum sem vinna fyrir okkur við að safna fé þá eru þetta algjörlega forkastanleg vinnubrögð. Við höfum nú þegar óskað eftir útskýringum,“ segir Árný en tekið er fram að félagið hringi ekki sjálft út heldur fái þriðja aðila til þess.

Nánar í Fréttablaðinu í dag.