Jón Magnússon hæstaréttarlögmaður fær ekki séð að ÁTVR þurfi að halda uppi smásölu á áfengi. Lögbannskrafa ÁTVR vegna vefverslunar með áfengi hefur vakið talsverða athygli og umræðu um það hvort núverandi stefna sé barn síns tíma.
Jón rifjar upp í pistli á heimasíðu sinni að ríkið hafi í gegnum tíðina haft puttana í ýmsu. Þannig var Viðtækjaverslun ríkisins einokunarverslun ríkisins með útvörp og fleira og sérstakar mjólkurbúðir voru þær einu lengi vel sem máttu selja mjólk. Þá muna einhverjir eftir Grænmetisverslun ríkisins, síðar Grænmetisverslun landbúnaðarins sem átti að tryggja fæðuöryggi og nægt framboð af hollum og góðum kartöflum og grænmeti.
„Nú er deilt um netverslun með áfengi og ÁTVR telur fráleitt út frá heilbrigðissjónarmiði, að aðrir en ríkiseinokunin fái að stunda slíka verslun með áfengi. En er það svo, að borðalagðir ríkisstarfsmenn séu hæfari til að afgreiða áfengi en aðrir,“ spyr Jón.
Hann veltir fyrir sér hvort skírskotunin til heilsufars eigi við þegar aðgengi að áfengi sé slíkt að það er selt á hundruðum bara og einnig í vegasjoppum hringinn í kringum landið.
„Telja má upp á, að þeir sem versla áfengi í netverslun séu ekki þeir sem líklegastir til að vera í bráðum heilsufarslegum vanda vegna neyslu á þessari vöru,“ segir Jón sem bætir við áfengi sé vissulega hættulegt fíkniefni og þess vegna verði að vera ákveðin áfengisstefna í landinu sem tekur sem tekur mið af því með hvaða hætti lýðheilsusjónarmið og sala áfengis verði samrýmd.
„Í því sambandi er helst talað um verðlagningu og aðgengi og ríkisvaldið þarf að huga að þeim atriðum sérstaklega. En það verður ekki séð að ÁTVR þurfi að halda uppi neinni smásölu á áfengi,“ segir Jón sem stingur upp á ákveðinni lausn:
„Af hverju ekki að fela þeim sem vilja kaupa eiga eða reka áfengisverslanir að gera það undir eftirliti ÁTVR sem yrði þá alfarið heildverslun með áfengi. Væri það ekki betri leið en sú að fela ríkisstarfsmönnum að hafa alfarið með smásölu úr verslunum að gera. Þjónar það frekari tilgangi í dag en verslun með mjólk á sínum tíma, viðtækjum eða kartöflum.“