Jón með mikilvæg skilaboð til karla: „Þetta er búið að vera langur og strangur gangur“

„Þetta hér að framan sýnir hversu mikilvægt það er að koma tímanlega til skoðunar svo hægt sé að greina meinið í tíma,“ segir Jón H. Guðmundsson, ellilífeyrisþegi og krabbameinssjúklingur, í aðsendri grein í Morgunblaðinu í dag.

Óhætt er að segja að þar sendi Jón mikilvæg skilaboð til allra karla um að koma tímanlega til krabbameinsskoðunar. Sjálfur greindist hann með krabbamein fyrir tólf árum og er enn að glíma við eftirköst þess.

Jón bendir á að nú sé langt liðið á mottumars, sem tileinkaður er karlmönnum til að vekja þá til umhugsunar um krabbamein.

„Þetta er lofsvert framtak hjá Krabbameinsfélaginu sem það hefur gert undanfarin ár. En ágætu karlmenn, það er ekki bara í mars sem við þurfum að halda vöku okkar heldur alla hina mánuði ársins líka.“

Jón bendir á að það séu liðin rúmlega tólf ár síðan hann greindist með krabbamein í blöðruhálskirtli og er hann enn að glíma við eftirköst þess.

„Þekkingarleysi á þeim tíma og að skynja ekki þær breytingar sem áttu sér stað í líkamanum gerði það að verkum að meinið var komið út fyrir hann. Breytingarnar voru aðallega fólgnar í því að maður þurfti oftar að pissa og það var eins og blaðran tæmdist ekki. Með þá þekkingu sem er til staðar í dag var augljóst að þetta væru dæmigerð einkenni sem sýndu að ekki væri allt í lagi með blöðruhálskirtilinn, enda kom það á daginn.“

Svo fór að blöðruhálskirtillinn var tekinn en það tók nokkur ár að finna hvar meinið sem var komið út fyrir væri. Nokkrum árum seinna kom í ljós að meinið var komið í beinin.

„Þetta er búið að vera langur og strangur gangur og ýmislegt á dagana drifið. Hormónasprautur á þriggja mánaða fresti í allan þennan tíma og svo sterk krabbameinslyf daglega. Svo eru það allar aukaverkanirnar sem þessu fylgja sem ekki eru á heilbrigðan mann leggjandi, sem er of langt mál til að rekja hér. Enn er maður uppistandandi.“

Jón þakkar öllu því frábæra heilbrigðisstarfsfólki sem við eigum, hvort heldur sem er læknar eða hjúkrunarfólk, sem hefur sinnt honum vel.

„Svo vil ég einnig minnast á starfsfólkið í Ljósinu, það hefur tekið mér einstaklega vel og alltaf tilbúið þegar á þarf að halda. Þessu fólki vil ég senda mitt innilegasta þakklæti. Þetta hér að framan sýnir hversu mikilvægt það er að koma tímanlega til skoðunar svo hægt sé að greina meinið í tíma. Því vil ég hvetja alla karlmenn sem eru komnir á miðjan aldur til að fara og láta skoða sig. Munið að eftir því sem bíllinn ykkar eldist þurfið þið að fara með hann oftar í skoðun. En hvað með ykkur?“