Jón Magnús Jóhannesson, læknir og einn ötulasti talsmaður vísinda í umræðu á Íslandi vekur mikla athygli með athugasemd sinni viðfrétt Fréttablaðsins um viðbrögð Uglu Stefaníu Kristjönudóttur Jónsdóttur, fyrrverandi formanns Trans Íslands, við máli Ívu Marín Adrichem.
Íva var klippt út úr kynningarmyndbandi á vegum Ferðamálastofu, ÖBÍ og Sjálfsbjargar landssambands hreyfihamlaðra vegna meintra skoðana hennar á trans fólki. Íva skrifaði nafn sitt undir umdeilda umsögn Samtakanna 22 um bælingarmeðferðir en þar var tilvist trans fólks dregin í efa og lagst gegn því að bælingarmeðferðir yrðu gerðar ólöglegar.
Íva sagðist í kjölfarið ætla að leita réttar síns. Ugla segir í samtali við Fréttablaðið að sér finnist ekkert óeðlilegt við það að Íva hafi verið klippt út. „Mér finnst ekkert óeðlilegt við það að samtök segi skilið við fólk sem hefur verið í forsvari fyrir hópa sem hafa það eitt að leiðarljósi að beita sér gegn réttindum minnihlutahópa. Þvert á móti myndi hinsvegar finnast það stórfurðulegt að samtök vilji kenna sig við slíka einstaklinga.“
Heitar umræður um málið
Heitar umræður eru um málið á Facebook síðu Fréttablaðsins. Þar leggja margir orð í belg, meðal annars Jón Magnús Jóhannesson læknir og Margrét Friðriksdóttir, bloggari á frettin.is, en þau eru ekki sammála.
„Ugla slær hér naglann á höfuðið,“ skrifar Jón Magnús. „Það er ekki slaufun eða þöggun að gagnrýna hatur. Enginn hefur rétt á að leika í myndbandi fyrir hönd hvers konar samtaka.“
Hann segir Trans fólk eiga skilið sömu vernd og aðrir hópar sem LGBTQIA+ nær yfir. „Enn fremur eru tilraunir til að neita tilvistarrétt þessa fólks klár hatursumræða og ekkert annað.“
Margrét, sem er þekkt fyrir að sitja ekki á skoðunum sínum, er hinsvegar alls ekki sammála og kemur Ívu Marín til varnar.
„Ung hugrökk kona sem tilheyrir a.m.k þremur minnihlutahópum getur seint talist vera að vinna gegn minnihlutahópum. Þessi transkona Ugla er sturluð úr frekju og yfirgangi og þessa sturlun sem þetta fólk stendur fyrir verður öllu heldur að stoppa. Að brjálaðir aktivistar séu hér farnir að stjórna stofnunum og fyrirtækjum með skoðanakúgun er hneyksli útaf fyrir sig.“