Jón Magnús Jóhannesson, deildarlæknir á Landspítala, segist ekki geta undirstrikað það nógu oft hversu mikilvægt það er að allir sem geta fari í bólusetningu nú þegar bólusetningar ungmenna 12 til 15 ára eru að hefjast hér á landi.
„Þetta er bæði til að vernda börn gegn sjaldgæfum, en alvarlegum, fylgikvillum COVID-19 og til að varðveita skólastarfsemi eins og hægt er. Við höfum gífurlegt magn af vísindalegum gögnum sem segja okkur, endurtekið, að ávinningur bóluefnanna sé ótvíræður,“ segir Jón Magnús í pistli á Facebook-síðu sinni sem vakið hefur talsverða athygli.
„Sömu gögn segja okkur að þó sjaldgæfar alvarlegar aukaverkanir geta komið fram eftir bólusetningu eru þær sjaldgæfari, og vægari, m.v. alvarlega fylgikvilla COVID-19,“ segir Jón Magnús og birtir með færslunni allskonar upplýsingar sem styðja við framangreindar fullyrðingar hans.
Hægt er að kynna sér málið nánar í færslu hans hér að neðan: