Aðgerðarsinninn Jón Kaldal er gáttaður á frágangi eigenda að lóð við Njálsgötu og sinnuleysi borgaryfirvalda. Hann birtir Twitter færslu um málið.
„Þrjú ár eru liðin frá því hús á þessari lóð við Njálsgötu var rifið,“ skrifar Jón og lætur mynd fylgja. Þar má sjá að búið er að girða fyrir stóran hluta götunnar með steypukubbum.
„Síðan hefur girðing náð út á miðja gangstétt og fyrir 5 vikum komu þessir steypukubbar. Aldrei hafa þó verið framkvæmdir þarna. Skömmin er auðvitað eigandans, mun vera Reir, en hvað eru borgaryfirvöld að spá?“
Þrjú ár eru liðin frá því hús á þessari lóð við Njálsgötu var rifið. Síðan hefur girðing náð út á miðja gangstétt og fyrir 5 vikum komu þessir steypukubbar. Aldrei hafa þó verið framkvæmdir þarna. Skömmin er auðvitað eigandans, mun vera Reir, en hvað eru borgaryfirvöld að spá? pic.twitter.com/FJuD0w8MPv
— Jón Kaldal (@jonkaldal) August 19, 2022