Jón Jósafat skorar á þríeykið að snúa aftur - En vegna nýs vanda

Jón Jósafat Björnsson, framkvæmdastjóri Dale Carnegie á Íslandi, skorar á þríeykið, sem og forseta lýðveldisins, forsætisráðherra, og almannavarnir að halda tvöhundruð upplýsingafundi í viðbót, en þó um annað málefni.

Hann vill að fólk verði hvatt til að fara út og hitta annað fólk.

„Eftir 200 fundi Þríeykisins og hundruð milljarða úr ríkissjóði tókst yfirvöldum að milda áhrif kórónuveirufaraldursins á landsmenn meira en flestum öðrum stjórnvöldum í öðrum löndum. Skilaboðið voru skýr „Verum heima og forðumst fólk!“. Það er stundum sagt að það taki 21 dag að búa til nýja venju og eftir 21 mánuð náðu skilaboðin rækilega í gegn.“ skrifar Jón Jósafat í grein á Vísi.

„Í gang fór svo einhvern stærsta félagsfræðitilraun samtímans þar sem fólk var einangrað mánuðum saman með snjalltæki í höndunum, hvert í sínu horni að horfa á sjónvarpið án mikilla raunverulegra samskipta við annað fólk. Nú þegar rykið sest blasa við ýmsar áskoranir og ef við föngum umræðuna í dag eru hugtök eins og; einelti, einmannaleiki, skólaforðun, skortur á umburðarlyndi og samkennd, viðkvæmni, rasismi, stress og stuttur þráður í fólki, eitthvað sem kemur sífellt fyrir í umræðunni.“ segir hann, en tekur fram að það ætti ekki að koma á óvart.

„Ekkert af þessu ætti að koma á óvart. Þetta eru einfaldlega afleiðingar af aðgerðum sem sennilega voru nauðsynlegar til að vernda ,,stærri“ hagsmuni.“ segir Jón Jósafat.

Hann skorar nú, eins og áður segir á þríeykið, og stjórnvöld að grípa til taumanna og halda annars konar upplýsingafundi.

„Nú skora ég á Þríeykið, forseta Íslands, forsætisráðherra og almannavarnir að halda 200 upplýsingafundi til að hvetja Íslendinga til að fara út, hitta fólk og auka nánd og nærveru. Sambönd verða betri með meiri samskiptum. Eins og það er hægt að tala hluti niður þá er hægt að tala þá upp.“ skrifar hann.