Jón Ingi spyr: „Er þetta ekki bara komið gott?“

Jón Ingi Hákonarson, oddviti Viðreisnar í Hafnarfirði, spyr hvort ekki sé kominn tími til að leggja sementspokunum og leyfa Íslendingum að njóta raunverulegs ávinnings dugnaðar síns og útsjónarsemi með alvöru gjaldmiðli.

Jón Ingi skrifar grein á vef Vísis sem vakið hefur talsverða athygli en þar talar hann um gjaldmiðlamálin.

„Eitt aðaleinkenni íslensks atvinnulífs og Íslendinga almennt er dugnaður og útsjónarsemi. Í aldanna rás hafa Íslendingar unnið baki brotnu og tekist að byggja upp gott samfélag þar sem fólk hefur það almennt nokkuð gott þó auðvitað séu hér hópar sem hafa verið skildir eftir.“

Jón Ingi segir að þegar horft er á þróunina frá stríðslokum 1945 þá höfum við í raun farið frá því að vera eitt fátækasta ríki Evrópu í eitt það blómlegasta. Líkja megi árangrinum við það að keppa í maraþonhlaupi á HM í frjálsum íþróttum og vera eini keppandinn með sementspoka á bakinu en hafna samt í einu af efstu sætunum.

„Til að ná slíkum árangri þarf hlauparinn að æfa miklu meira en hinir til að ná þessum árangri, leggja tvöfalt meira á sig. Er ekki kominn tími til að losa okkur við sementspokann og uppskera laun erfiðis okkar? Ég trúi á jöfn tækifæri en þegar sumir þurfa að hlaupa með sementspoka á bakinu er um ójafna keppni að ræða.“

Jón Ingi nefnir í grein sinni að Flokkur fólksins hafi nú bent á eina af birtingarmyndum þessa ójafna kapphlaups.

„Bankarnir skila feitum hagnaði á sama tíma og verð hlutafjár í þeim rýkur upp á tímum djúprar efnahagslægðar. Skilaboðin eru þau að hækka beri bankaskattinn sem sumir halda fram að muni einungis leiða til hækkunar þjónustugjalda og vaxtamunar og þar með þyngja þennan blessaða sementspoka.“

Jón Ingi segir að rót vandans liggi í áhættusömum örgjaldmiðli sem kostar almenning tugi milljarða á ári, gjaldmiðli sem hamlar samkeppni, gjaldmiðli sem þrífst ekki nema með höftum.

„Viðbrögðin eru samt alltaf þau sömu, að meðhöndla einkennin í stað þess að ráðast að rótum vandans. Á meðan burðumst við með æ þyngri sementspoka á bakinu í lífsgæðakapphlaupinu, úrvinda dugnaðarfólk. Er þetta ekki bara komið gott? Er ekki bara best að leggja sementspokanum og leyfa okkur að njóta raunverulegs ávinnings dugnaðar okkar og útsjónarsemi með alvöru gjaldmiðli?“