„Ég beygi mig ekki fyrir ranglæti, yfirgangi og frekju,“ segir Jón Heiðar Guðjónsson í samtali við Fréttablaðið í dag. Jón Heiðar er eigandi Ferðaþjónustunnar Reykjanesi í Ísafjarðardjúpi en þar hafa staðið yfir deilur vegna nýtingar á heitu vatni.
Jón Heiðar hefur rekið Hótel Reykjanes frá árinu 2002 og hefur hundruðum milljóna verið varið í að byggja upp starfsemi á staðnum.
Ferðaþjónustan á byggingarnar á landinu en Ísafjarðarbær landið undir þeim. Ferðaþjónustan fékk nýtingarleyfi á jarðhitanum frá Orkustofnun en í frétt Fréttablaðsins er bent á að Ísafjarðarbær og Orkubú Vestfjarða hafi fengið leyfisveitingunni hnekkt fyrir úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála í fyrra.
Jón Heiðar telur sig eiga nýtingarrétt á heita vatninu og hann hafi fylgt með þegar eignin var keypt af ríkinu á símum tíma. Orkubúið telur sig hins vegar eiga nýtingarréttinn og við það selja Ferðaþjónustunni heita vatnið sem hún hefur hingað til fengið ókeypis.
Heita vatnið hefur til dæmis verið notað til að hita upp byggingar á staðnum og um 50 metra sundlaug á staðnum. Segir Jón að hann myndi ekki standa undir tugmilljóna reikningi frá Orkubúi Vestfjarða á ári hverju. Ef þannig fer telur Jón að starfseminni verði sjálfhætt.
„Ef ég ég fæ ekki að starfa hérna í friði og óáreittur þá bara verður maður að gefast upp og rífa þetta,“ segir hann.