Jón Magnússon, hæstaréttarlögmaður og lögmaður konu sem skikkuð var til að dvelja í farsóttarhúsi ásamt dóttur sinni, skrifar harðorðan pistil sem birtist á heimasíðu hans í morgun. Eins og kunnugt er úrskurðaði héraðsdómur í gær að ólöglegt væri að skikka fólk til dvalar í farsóttarhúsi og segir Jón að Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra beri ábyrgð á klúðrinu.
„Það gerist sem betur fer ekki oft, að ráðherra í ríkisstjórn Íslands gerist sekur um valdníðslu, en í gær féll úrskurður í héraðsdómi Reykjavíkur, sem segir að reglugerð sem heilbrigðisráðherra setti þ.23.mars. s.l. um frelsissviptingu fólks sem kemur til landsins og nauðungarvistun þess væri ólögmæt.“
Jón segir að þetta þýði í stuttu máli að frelsisssvipting fólks við komuna til landsins og nauðungarvistun sé ólögmæt, fyrst reglugerðin fer umfram þær heimildir sem eru í sóttvarnarlögum.
„Heilbrigðisráðherra ber alla ábyrgð á þessu klúðri, sem hefur leitt til þess að yfir 200 manns hafa verið frelsisviptir án þess að nokkur heimild sé til þess í lögum. Leiga á gríðarstóru hóteli þjónar engum tilgangi lengur. Þannig hefur milljörðum af peningum skattgreiðenda verið kastað á glæ. Þegar um er að ræða jafn alvarlegt brot í stjórnsýslunni, þá getur ráðherra ekki komið sér undan því að axla ábyrgð,“ segir Jón sem er einnig fyrrverandi þingmaður.
Hann segir að framkvæmdin hafi einnig verið ámælisverð, þannig hafi fólki ekki verið kynnt réttarstaða sín og sóttvarnarlæknir ekki haft þann viðbúnað til að tryggja réttarstöðu fólks og réttláta málsmeðferð. Segir Jón að allt þetta geti leitt til þess að fjöldi fólks geti sótt bótamál á hendur ríkinu.
Jón bendir á að nú sé kallað eftir nýrri lagasetningu en að hans mati er það mikið óráð.
„Heimildir stjórnvalda eru nú þegar mjög rúmar. Dæmið um valdníðslu heilbrigðisráðherra sýna að það er ekki gott að hrapa að lagasetningu. Víðtækar breytingar voru gerðar á sóttvarnarlögum eftir vandaða meðferð Alþingis, þar sem m.a. voru sett inn ákvæði sem stuðluðu að því að úrskurðurinn féll með þeim hætti sem hann gerði í héraðsdómi Reykjavíkur í gær. Alþingi hefur mikinn sóma af þeim breytingum, sem urðu á frumvarpinu og setningu laganna í sátt allra þingflokka ef ég man rétt.“
Jón segir að allir séu sammála um mikilvægi þess að gæta sóttvarna vegna COVID-19 og eðlilegum aðgerðum sé beitt til að halda smitum í lágmarki og koma í veg fyrir ótímabær dauðsföll.
„En það er ekki sama hvernig það er gert og allt þarf að vera í samræmi við lög og reglur. Af hálfu heilbrigðisráðherra var haldið fram að brögð væru að því að fólk væri að brjóta reglur um heimasóttkví. Hvað er þá til ráða í því efni? Er rétt að nauðungarvista alla sem koma til landsins vegna örfárra sem brjóta af sér? Slíkt er varhugavert.“
Jón veltir fyrir sér hvers vegna ekki sé gripið til einfaldasta og sennilega ódýrasta ráðsins. „Að efla lögregluna þannig að hún geti sinnt störfum sínum betur. Í því sambandi verður að hafa í huga, að lögreglan hefur verið svo fjársvelt um langan tíma að öryggi fólks er hætta búin og erlendir ofstopamenn eru sakaðir um að hafa myrt tvo einstaklinga við heimili sín á Reykjavíkursvæðinu með stuttu millibili.“
Segir Jón að réttast væri að huga að þeirri vá sem er hvað alvarlegust í þjóðfélaginu í stað þess að breyta „þjóðfélaginu í eitt risastórt fangelsi“ vegna brota hinna fáu.