Jón H. Bergs, fyrrverandi formaður Vinnuveitendasambands Íslands og forstjóri SS, er látinn. Jón lést á Dvalarheimilinu Eir 13. apríl síðastliðinn. Greint er frá andlátinu í Morgunblaðinu í dag. Jón var fæddur 14. september 1927 og var því á 93. aldursári.
Jón var forstjóri SS í rúm 30 ár, eða frá 1957 til 1989. Áður en hann tók við stöðu forstjóra lauk hann meðal annars embættisprófi í lögfræði frá Háskóla Íslands árið 1952. Þá stundaði hann framhaldsnám við Columbia University School of Law í New York árin 1953 til 1954.
Jón sat í framkvæmdanefnd Vinnuveitendasambands Íslands á árunum 1961 til 1978 og var formaður þess frá 1971 til 1978. Þá sat hann í framkvæmdaráði Stjórnunarfélagsins og var aðalræðismaður Kanada um langt skeið. Jón sat einnig í stjórnum Eimskipafélags Íslands og Íslensks markaðar hf.
Jón var sæmdur riddarakrossi hinnar íslensku fálkaorðu árið 1973.
Eiginkona Jóns var Gyða Bergs sem lést árið 2017. Þau eignuðust þrjú börn; Lauru Bergs, Magnús Helga Bergs og Jón Gunnar Bergs. Barnabörn þeirra eru níu og barnabarnabörnin eru sjö.