Jón Gunnars­son skipar fyrrum þing­mann lög­reglu­stjóra í Vest­manna­eyjum

Dóms­mála­ráð­herra hefur skipað Karl Gauta Hjalta­son í em­bætti lög­reglu­stjórans í Vest­manna­eyjum frá og með 1. apríl 2023. Þetta kemur fram á vef Stjórnar­ráðsins.

Karl Gauti lauk em­bættis­prófi í lög­fræði frá Há­skóla Ís­lands árið 1989 og hlaut réttindi héraðs­dóms­lög­manns árið 1996. Hann starfaði sem dómara­full­trúi hjá bæjar­fógetum á árunum 1989 til 1992 og full­trúi og síðar stað­gengill hjá em­bætti sýslu­mannsins á Sel­fossi frá 1992 til 1998. Hann var sýslu­maður og lög­reglu­stjóri í Vest­manna­eyjum frá 1998 til 2014 og skóla­stjóri Lög­reglu­skóla ríkisins frá 2014 til 2016.

Karl Gauti hefur átt sæti í al­manna­varna­nefnd Vest­manna­eyja og stjórn fræðslu- og starfs­menntunar­sjóðs lög­reglu. Þá var Karl Gauti settur sýslu­maður á Hólma­vík hluta úr sumri árið 1996 og settur lög­reglu­stjóri í Reykja­vík, rann­sóknar­lög­reglu­stjóri og sýslu­maður í Vest­manna­eyjum til að rann­saka ein­stök saka­mál. Auk þess hefur Karl Gauti setið í tveimur starfs­hópum á vegum innan­ríkis­ráðu­neytisins í mál­efnum sem tengjast lög­reglu. Karl Gauti var kjörinn á þing árið 2017 og sat sem þing­maður til ársins 2021.