Jón grjótharður og vill árangur: „Bakkus verður bannaður og menn þurfa að sofa á nóttunni“

Jón Baldursson, tvöfaldur heimsmeistari, tekur í dag við landsliðinu í opnum flokki í bridds. Óhætt er að segja að Jón njóti virðingar í briddsheiminum enda var hann í hópi Íslands sem varð heimsmeistari árið 1991. Árangurinn að undanförnu hefur þó ekki verið góður og því ætlar hann að breyta.

Fréttablaðið fjallar um þetta í dag og segir frá því að Jón taki sjálfur sæti í landsliðinu. Sigurbjörn Haraldsson verður makker og fjórir aðrir spilarar verða svo í liðinu.

„Ég hef verið mikill á­huga­maður um fram­gang briddsins hér á landi,“ segir Jón við Fréttablaðið og bætir við: „Okkur gekk mjög illa á síðasta Evrópu­móti. Nú er ég hættur að vinna og hef tíma, við hjónin verðum vonandi eitt­hvað saman í þessu verk­efni.“

Jón segir við Fréttablaðið að markmiðið sé skýrt, koma Íslandi á HM með því að ná góðum árangri á Evrópu­mótum 2024 og 2026 auk þess að ná sigri á Norður­landa­mótum.

„Við höfum alveg mann­skap í þetta. Við erum að glíma við at­vinnu­menn í hinum liðunum en við ætlum að vaða í þá,“ segir hann og bætir við að hugarfar og góður agi sé mikilvægur.

„Ég reikna með að flestir þeirra sem ég muni velja í liðið búi yfir góðum aga. Bakkus verður bannaður og menn þurfa að sofa á nóttunni og hvíla sig,“ segir hann og bætir við að árangur sé eitt af því sem laðar að nýtt ungt fólk.