Jón Gnarr, grínisti og fyrrverandi borgarstjóri, vill þjóðaratkvæðagreiðslu um hvort taka eigi upp viðræður við Evrópusambandið að nýju.
Jón viðraði þessa skoðun sína á Twitter á dögunum.
„Mér fannst fúlt og ólýðræðislegt hvernig þetta mikilvæga mál var drepið,“ bætti Jón við.
Ísland sótti um aðild að Evrópusambandinu í júlí 2009 og var viðurkennt sem umsóknarríki af þáverandi 27 aðildarríkjum ári síðar. Hlé var gert á umsóknarferlinu árið 2014 og síðan þá hefur lítið gerst í málinu.
Samkvæmt niðurstöðum Þjóðarpúls Gallup í mars síðastliðnum er hátt í helmingur landsmanna hlynntur aðild Íslands að Evrópusambandinu en þriðjungur er mótfallinn. Fleiri eru hlynntir aðild nú en þegar spurt var fyrir átta árum síðan.
ég vill þjóðaratkvæðagreiðslu um hvort eigi að taka upp viðræður við EU á ný. mér fannst fúlt og ólýðræðislegt hvernig þetta mikilvæga mál var drepið pic.twitter.com/0aUCMlui47
— Jon Gnarr (@Jon_Gnarr) September 15, 2022