Jón Gnarr vill þætti byggða á Flokki fólksins: Ólafía Hrönn gæti leikið Ingu Sæland

Jón Gnarr, grínisti og fyrrverandi borgarstjóri, varpaði fram áhugaverðri hugmynd á Twitter-síðu sinni í dag. Gustað hefur um Flokk fólksins að undanförnu eftir að þrjár konur í flokknum á Akureyri sökuðu forystumenn flokksins þar um ósæmilega hegðun.

Fjallað hefur verið ítarlega um málið síðastliðinn sólarhring eða svo.

„Djöfull væri gaman að gera sjónvarpsþætti byggða á Flokki fólksins. Ólafía Hrönn væri td æðisleg í hlutverki Ingu Sæland. Ég gæti leikið svona þrjá kalla. Tommi er að koma til landsins og fær far með JFM. Þegar spennan á alþingi er í hámarki klippum við yfir á Akureyri,“ segir Jón sem virðist þegar vera farinn að leggja drög að handriti. „Skrifar sig eiginlega sjálft,“ segir Jón.