Jón Gnarr vill nýtt nafn á Samfylkinguna og leggur þetta til

Jón Gnarr, grínisti, leikari og fyrrverandi borgarstjóri, segir að kominn sé tími á að Samfylkingin skipti um nafn. Samfylkingin – Jafnaðarmannaflokkur Íslands, eins og hann heitir fullu nafni, var stofnaður árið 2000 til að vinna sem mótvægisafl við Sjálfstæðisflokkinn.

Á ýmsu hefur gengið á þessum rúmu 20 árum sem liðin eru frá stofnun flokksins en undanfarin ár hefur Samfylkingin mátt muna sinn fífil fegurri.

Jón Gnarr gerir nöfn stjórnmálaflokka hér á landi að umtalsefni á Twitter-síðu sinni og um Samfylkinguna segir hann:

„Samfylkingin er vont nafn. Eins og margt annað þá á það að vísa í e-ð sem fá skilja almennilega og heldur ekki endilega innistæða fyrir hvorki fylkingu né sam. Nýtt nafn og út með þetta hallærislega lógó,“ segir hann og bætir svo við:

„Mín tillaga að nýju nafni Samfylkingarinnar væri Sósíaldemókratar Íslands SDI. en það fær örugglega ekki mörg atkvæði. Mér leiðist alveg smá þetta gildishlaðna jafnaðar-tal en það er þó skárra en Samfylkingin.“

Jón segir svo að Sjálfstæðisflokkurinn og Píratar séu einu flokkarnir á Íslandi sem eru með töff nöfn og lógó. „Framsóknarflokkurinn sleppur en allt hitt er vandræðalega vont og hallærislegt.“