Jón Gnarr vill nýtt nafn á leið­sögu­menn: „Að þýða starfs­heiti með því sem við­komandi gerir + maður er orðin svaka­lega þreytt að­ferð“

Grín­istinn og stjórn­mála­maðurinn Jón Gnarr er orðinn veru­lega þreyttur á þeirri mál­venju á starfs­heiti séu byggð á því sem fólk geriri og kemur með hug­mynd að nýju nafni á leið­sögu­menn.

„Sú að­­ferð að þýða starfs­heiti með því sem við­komandi gerir+maður er orðin alveg svaka­­lega þreytt að­­ferð. leið­­sögu-maður er eitt. af­hverju ekki Göngu-leiðir?“ skrifar Jón á Twitter.

Andrés Magnús­son, full­trúi rit­stjóra á Morgun­blaðinu, stingur upp á að leið­sögu­menn verði kallaðir Leið­beinandi eða Veg­vísir og tekur Jón á­gæt­lega í það.