Jón Gnarr, grínisti, rithöfundur og fyrrverandi borgarstjóri, segir að góðar ástæður séu fyrir því að launafólki þyki almennt ekki eftirsóknarvert að vera á jafnaðarkaupi.
Hugmynd Sigmars Vilhjálmssonar, Simma Vill, veitingamanns og formanns Atvinnufjelagsins, um lögleiðingu jafnaðarkaups hefur mælst misjafnlega fyrir. Að mati Sigmars er það óréttlátt að hlutastarfsmenn fái hærri laun fyrir kvöld- og helgarvinnu. Hefur hann talað fyrir því að fyrstu átta klukkutímarnir teljist dagvinna og skiptir þá engu á hvaða tíma dags unnið er.
Jón Gnarr lagði orð í belg á Twitter-síðu sinni í gær og rifjar upp að hann hafi einu sinni unnið á jafnaðarkaupi fyrir Garðaprýði í Svartsengi.
„Keyrður þangað á morgnana og sóttur á kvöldin. Vann yfirleitt 12-14 tíma daga + 2 klt í ferðir framogtilbaka. Verstu laun sem ég hef fengið. Fokk jafnaðarkaup!,“ segir hann.
ég vann einu sinni á jafnaðarkaupi í garðyrkju fyrir Garðaprýði í Svartsengi. keyrður þangað á morgnana og sóttur á kvöldin. vann yfirleitt 12-14 tíma daga + 2 klt í ferðir framogtilbaka. verstu laun sem ég hef fengið. fokk jafnaðarkaup! #Jafnaðarkaup
— Jon Gnarr (@Jon_Gnarr) June 2, 2022