Jón Gnarr urðar yfir Samherja: „Ósvífnir og siðlausir drullusokkar“

Grínistinn og rithöfundurinn Jón Gnarr fer ófögrum orðum um sjávarútveigsfyrirtækið Samherja í færslu sem birtist á Twitter í dag.

Þar vísar hann til máls sem er nýkomið upp, og varðar það að Samherji hafi reynt að stöðva útgáfu bókar um fyrirtækið.

Stundin fjallar um málið í dag, en þar segir að Eg­ill Örn Jó­hanns­son, fram­kvæmda­stjóri For­lags­ins, hafi fengið tölvupóst um að innkalla bókina til að spara sér mikinn málskostnað. Sérstaklega var tekið fram að málið yrði höfðað í Englandi, líklega vegna þess að það kosti meira.

„Googlaðu bara English defamation law og hvað málflutningsmaður QC kostar á klukkutímann. Þetta er ekki hótun ... bara að aðstoða þig að taka upplýsta ákvörðun.“ segir í tölvupóstinum.

Þetta virðist hafa farið fyrir brjóstið á Jóni: „Alls engin hótun, sko, bara vinsamleg ábending um hvað við erum ósvífnir og siðlausir drullusokkar.“ skrifar Jón, sem endurtekur síðan innihald tölvupóstsins.