Jón Gnarr segir að Jón Viðar sé sérkennilega innréttaður náungi

Jón Gnarr, grínisti og fyrrverandi borgarstjóri, lætur Jón Viðar Jónsson, einn fremsta leikhúsgagnrýnanda þjóðarinnar, heyra það á Twitter.

DV fjallaði í gær um deilur Jóns Viðars og Ólínu Þorvarðardóttur um mál 32 ára Dana sem er grunaður um að hafa rænt hinni 13 ára gömlu Filippu og nauðgað henni ítrekað. Stúlkan hvarf á laugardag en fannst sem betur fer á lífi á sunnudag.

Á meðan Ólína gagnrýni að myndir væru birtar af Filippu og engar af hinum grunaða barnaníðingi – og ekki einu sinni nafn hans – brást Jón Viðar með því að segja að fólk sé saklaust uns sekt sannast.

„Enginn sekur fyrr en sekt er sönnuð. Það er auðvitað skítt að geta ekki fengið reiði sinni og hneykslan útrás undireins heldur þurfa að bíða eftir því að réttvísin hafi sinn gang,“ sagði hann.

Jón Gnarr gerði þetta að umtalsefni á Twitter-síðu sinni í gær.

„Jón Viðar er sérkennilega innréttaður náungi. nú fer hann mikinn á fb sem sérlegur verndari þessa danska barnaníðings og ef e-r hallar orði á hann þá er Jóni að mæta! það er ekki almennilega hægt að gera grín að honum og heldur ekki hægt að taka hann alvarlega. bara...“