Jón Gnarr og Guðni gera grín af sam­særis­kenningu Péturs: „Jæja krakkar, þá erum við öll komin með Aids“

Guðni Hall­dórs­son, sem starfar sem sjón­varps­þátta klippari hjá Saga Film, gerir létt grín af Pétur Yngva Leós­syni á Twitter í dag eftir sá síðar­nefndi birti heldur betur ó­trú­lega mynd á miðlinum.

Pétur deildi mynd sem inni­heldur falskar upp­lýsingar sem eiga að koma frá ríkis­stjórn Kanada og bendir til þess að þeir sem eru þrí­bólu­settir hafi þróað með sér al­næmi

Grín­istinn Jón Gnarr leggur orð í belg undir færslunni og segir þetta ömur­legt. „Það væri svo auð­veld­lega hægt að fyrir­byggja ef fólk bara drykki úr sér pissið á hverjum morgni,“ skrifar Jón og hefur hol­skefla af fólk hlaðið í brandarana undir þræðinum.