Jón Gnarr, grínisti og fyrrum borgarstjóri, kemur lögreglunni til varnar í röð tísta sem hann birti í dag. Lögreglan hefur verið gagnrýnd undanfarna viku vegna hlutverki hennar í brottvísun flóttamanna í síðustu viku.
„Að vera lögga er erfiðasta starf á Íslandi. Hver vakt er óvissuferð og þú þarft að ganga inn í aðstæður og sjá hluti sem engin manneskja ætti að þurfa að sjá. Þunglyndi og kvíði er hluti af starfinu, sjálfsvígstíðni er ein hæsta meðal starfsstétta og úrræðin eru takmörkuð,“ sagði hann á Twitter.
að vera lögga er erfiðasta starf á Íslandi. hver vakt er óvissuferð og þú þarft að ganga inní aðstæður og sjá hluti sem engin manneskja ætti að þurfa að sjá. þunglyndi og kvíði er hluti af starfinu, sjálfsvígstíðnin er ein hæsta meðal starfsstétta. og úrræði eru takmörkuð
— Jon Gnarr (@Jon_Gnarr) November 7, 2022
Jón varð fyrir mikilli gagnrýni fyrir að verja lögregluna eins og hann gerði. „Hatrið gegn löggunni er svo mikið að ef einhver reynir að taka upp hanskann fyrir almennum löggum og benda á að þetta er bara fólk sem er að vinan hræðilega erfitt starf verður viðkomandi tekinn niður með öllum ráðum því heiftin skal ráða för,“ sagði Jón í svari við gagnrýninni.
hatrið gegn löggunni er svo mikið að ef einhver reynir að taka upp hanskann fyrir almennar löggur og benda á að þetta er bara fólk sem er að vinna hræðilega erfitt starf verður viðkomandi tekinn niður með öllum ráðum því heiftin skal ráða för https://t.co/AiU4AqThKw
— Jon Gnarr (@Jon_Gnarr) November 7, 2022
Jón virðist hafa fengið nóg af lögreglumálinu og sagðist ekki nenna að ræða það frekar. „Ömurlegt hvernig að þessu var staðið. Sammála því. Harma það. En mér finnst útlendingaandúð Íslendinga óskiljanleg og lögin ómanneskjuleg og ekki við lögguna að sakast heldur kerfið. Auðvitað má skamma löggur sem ganga of langt,“ sagði Jón.
nenni ekki að ræða þetta löggumál frekar. ömurlegt hvernig að þessu var staðið. sammála því. harma það. en mér finnst útlendingaandúð íslendinga óskiljanleg og lögin ómanneskjuleg og ekki við lögguna að sakast heldur kerfið. auðvitað má skamma löggur sem ganga of langt
— Jon Gnarr (@Jon_Gnarr) November 7, 2022