Leikarinn og fyrrverandi borgarstjórinn Jón Gnarr lýsti yfir hatri sínu á jólahátíðinni og nær öllu sem henni fylgir á Twitter í dag. Ummæli hans spunnust út frá þræði Eddu Falak um að henni þætti hamborgarhryggur vondur.
Við vörum jólabörn við því sem koma skal hér að neðan.
Samfélagsrýnirinn Edda Falak skóf ekkert af hlutunum á Twitter í gær: „Get ekki beðið eftir að tweeta að mer finnist hamborgarahryggur vondur og sjá kommentin á dv : “HVERJUM ER EKKI DRULLU SAMA HVAÐ EDDA FALAK BORÐAR Á JÓLUNUM”“
Edda brenndi sig á algengum misskilningi og bætti við: „Það er víst hamBORGARhryggur, þvilika vitleysan.“
Gísli Marteinn Baldursson, sjónvarpsmaður í sóttkví, svaraði Eddu og þykir hamborgarahryggur betra orð: „Finnst þú ættir að halda þig við vitlausa orðið. Gerir fólk ennþá reiðara.“
Katrín Atladóttir, Borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, vísaði í grein DV frá árinu 2019 sem greindi frá rifrildi Jóns Gnarr og Sigmars Vilhjálmssonar, veitingamanns og sjónvarpsstjörnu, um jólamat. Jón sagði að fólk sem legði sér svínakjöt til munns á jólunum væru föðurlandssvikarar.
Sigmar – sem var á þessum tíma talsmaður félags svína-, eggja- og kjúklingabænda – var aldeilis ekki hrifinn af orðum Jóns og bað hann vinsamlegast um að kynna sér sögu Íslands betur áður en hann færi að kenna öðrum hana.
Jón rifjar upp gamla takta undir þræði Eddu frá því í gær og úthúðar jólunum: „Það er reglulega hringt í mig fyrir jólagreinar. mér leiðast jól og þau þýða yfirleitt útgjöld umfram innkomu. ég á enga góða jólaminningu úr æsku. mér leiðist jólaskraut og ég held ég geti sagt að ég hati jólalög af öllu hjarta og væri mjög sáttur við KFC og popp,“ segir Jón.
Þessu svarar Katrín og kveðst ósammála Jóni: „Þetta er samt hræðilegt að heyra, ég elska jólin og á svo margar góðar minningar. Nema af hamborgarhryggáti auðvitað, því það er viðbjóður.“