Jón Gnarr getur ekki hlustað á tónlist

Jón Gnarr, fyrrverandi borgarstjóri, leikari og rithöfundur, er haldinn vangetu til að upplifa ánægju við að hlusta á tónlist. Jón segir frá þessu á Twitter-síðu sinni en um er að ræða taugafræðilegt ástand sem kallað er „musical anhedonia“.

„Ég fæ nánast enga ánægju af því að hlusta á tónlist, aldrei,“ segir hann í færslu sinni og bætir við að þar sem lífið er einskonar þversögn innan þversagnar sé staðreyndin séu örlögin einhvern veginn þannig að hann er tónlistarmaður og söngvari að hluta.

Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Jón Gnarr opnar sig um þessa röskun, en það gerði hann meðal annars í viðtali við RÚV árið 2019. Þar sagði hann að um væri að ræða ákveðna taugaröskun í heila.

„Sem barn átti ég við ýmsar þroskaáskoranir að stríða. Meðal annars í sambandi við tónlist. Aðrir krakkar hlustuðu á tónlist en ég bara náði þessu ekki,“ sagði hann og bætti við að enn ætti hann erfitt með að hlusta á tónlist.

„Ég á rosalega erfitt með að vera inni í rými með öðru fólki þar sem er tónlist. Það er mér eiginlega óbærilegt,“ sagði hann. Hann kvaðst hafa mætt á marga tónleika um ævina en gengið út af þeim nær öllum.

„Ég get þetta upp að einhverju marki, sem er kannski 15-20 mínútur.“