Jón Gnarr, fyrrverandi borgarstjóri og þúsundþjalasmiður, segir að uppfæra þurfi og efla íslenskukennslu hér á landi.
Jón segir frá því á Twitter-síðu sinni að hann hafi farið í flug í morgun frá Reykjavík til Akureyrar. Það vært í frásögur færandi nema fyrir það hvað margir töluðu ensku á leið Jóns.
„Taxabílstjórinn talaði ensku, skildi ekki íslensku. Keypti mér kaffi útá flugstöð á ensku. Það þarf að uppfæra og efla íslenskukennslu. Vondur nemandi er ekki til, bara léleg kennsla. Eða jafnvel engin,“ segir hann.
Jón Gnarr hefur látið sig að sér kveða að undanförnu í umræðunni um íslenskt mál, en í nýrri bók sinni, Óorð, gagnrýnir hann þá galla sem honum finnst vera á því kerfi sem við notum til að byggja upp og viðhalda íslenskunni. „Ég elska mitt móðurmál af öllu hjarta,“ segir hann meðal annars í kynningu um bókina.