Jón Gnarr: „Er ekki verið að mylja undan heilbrigðiskerfinu okkar og einkavæða það í rólegheitum?“

Þúsundþjalasmiðurinn Jón Gnarr virðist vera ansi hræddur um að stjórnvöld séu hægt að vinna að einkavæðingu heilbrigðiskerfisins.

„Er ekki verið að mylja undan heilbrigðiskerfinu okkar og einkavæða það í rólegheitum?“ skrifar hann á Twitter.

Í kjölfarið veltir hann fyrir sér hvort stefnan sé á ameríska módelið, en líkt og flestir vita, er heilbrigðiskerfið þar í landi gríðarlega einkavætt. Í kjölfarið spyr Jón hvort að næsta skref varði tryggingafélögin.

„Erum við ekki að stefna í Ameríska módelið? Er ekki næsta skref að tryggingafélögin fari að bjóða fólki heilbrigðistryggingar?“

Stefán Ólafsson, lektor við Háskólann í Reykjavík, svarar Jóni:

„Það er hægt að bjóða út hina og þessa þjónustu sem heilbrigðisþjónustan ber skyldu til að veita án þess að það breyti því hvernig við borgum fyrir aðgang að þjónustunni. En allt er gott í hófi eða hófí, fer eftir því hversu sprellaður þú ert.“