Jón Gnarr borðaði súrmat í morgunmat í æsku

Í æsku borðaði Jón Gnarr súrmat í morgunmat, alla daga vikunnar, allan ársins hring. Faðir hans, sem fæddur var árið 1918, hafði afar sérstakar matarvenjur að sögn Jóns en hann hafði sérstakt dálæti af súrmat og var með súr í bílskúrnum heima hjá þeim.

Súrsaður selshaus var stundum einnig á boðstólnum. „Pabbi fékk stundum sent frá Breiðafirði böggul sem innihélt selshaus og svo var hann að svíða þetta í bílskúrnum svo lagði óþef yfir allt hverfið,,. Jón Gnarr segir frá mat æsku sinnar og lýsir því hvernig var að eiga svo fullorðna foreldra, en móðir hans fæddist á árinu 1922. Faðir Jóns var einnig mikill sósíalisti og fór ekki í sumarfrí til Mallorca og venja þótti á þeim tíma heldur kaus hann frekar að fara til Búlgaríu.

Heima er bezt, mánudaga kl. 20.30

Smelltu hér til að horfa á allan þáttinn á hringbraut.is. Viðtalið við Jón hefst á 12. mínútu.