Jón Magnússon, hæstaréttarlögmaður og fyrrverandi þingmaður, furðar sig á því uppnámi sem verið hefur undanfarna daga í kringum málefni karlalandsliðsins í knattspyrnu.
Eins og flestum er kunnugt sagði Guðni Bergsson af sér sem formaður KSÍ í gær. Þetta gerðist í kjölfar þess að ung kona, Þórhildur Gyða Arnarsdóttir, steig fram í fréttum RÚV og sagði frá ofbeldi sem hún varð fyrir af hálfu landsliðsmanns. Var hún ósátt við það að Guðni hefði sagt í Kastljósi að engin kynferðisofbeldismál hefðu komið á borð sambandsins með formlegum hætti þó raunin hefði verið önnur. Guðni sagði af sér í gær en í kjölfarið hefur verið þrýst á aðra stjórnarmeðlimi að segja einnig af sér.
En Jón furðar sig á málinu og þá einna helst þætti RÚV sem hann virðist ósáttur með. Hann segir á Facebook:
„Landsliðsmaður í fótbolta brýtur af sér fyrir 5 árum. Sættir nást með málsaðilum um lok málsins, en 5 árum síðar fer RÚV í krossferð gegn KSÍ og formaðurinn er látinn segja af sér. En samt heldur krossferðin áfram. Af hverju? Er þetta eðlilegt? Kom KSÍ þetta yfirleitt við í fyrsta lagi?“
Sumir taka undir með Jóni en aðrir benda honum á að málið hefði ekki farið í þennan farveg hefði Guðni sagt satt og rétt frá í upphafi.
„Ef Guðni hefði sagt satt og rétt frá, þá hefði þetta aldrei orðið að því máli sem það varð og konan hefði ekki stigið fram. Þessi unga kona var á engan hátt að gera frekari kröfur á leikmanninn og hún hefur tekið það skýrt fram. Hún kom fram vegna þess að formaðurinn sem var vel inni í sáttinni sem var gerð í málinu, hafnaði því (laug) að ekkert slíkt mál hefði komið upp,“ segir í einni athugasemd.
Hannes Hólmsteinn Gissurarson, prófessor í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands, blandar sér einnig í umræðuna og segir, án þess að útskýra nánar: „Mér finnst þetta mál með ólíkindum. Hvað kemur næst?“