Jón fór víða um Ís­land í sumar: Magnaðir hlutir gerst á stuttum tíma – Ó­skiljan­leg á­kvörðun

„Við hjónin höfum ferðast tölu­vert innan­lands í sumar og notið þjónustu eins og hún gerist best í heiminum,“ segir Jón Magnús­son, hæsta­réttar­lög­maður og fyrr­verandi þing­maður.

Jón skrifar pistil á Face­book-síðu sína þar sem hann gagn­rýnir þá á­kvörðun yfir­valda að setja strangari skorður á komur ferða­manna til landsins. Eins og kunnugt er þurfa ferða­menn nú að fara í tvær sýna­tökur, þá seinni eftir að hafa verið í sótt­kví í 5 daga.

Jón segir að það sé í raun sorg­legt að ríkis­stjórnin hafi á­kveðið að stefna fyrir­tækjum í ferða­iðnaði í fjölda­gjald­þrot að á­stæðu­lausu. Um reynslu sína af ferða­lagi um Ís­land í sumar, segir hann:

„Það er ekki annað hægt en að dást að fram­förunum og fag­mann­legum vinnu­brögðum og við­gjörningi. Þetta hefur verið stórt stökk fram­á­við á stuttum tíma og á­stæða til að hrósa þeim sem að þessu hafa komið og vera stolt yfir því að við skulum hafa byggt upp þjónustu sem stendur hvað fremst í ver­öldinni.“

Jón vindur sér svo að stjórn­völdum og á­kvörðun þeirra um tvö­falda sýna­töku og sótt­kví.

„Það er því með öllu ó­skiljan­legt og ó­fyrir­gefan­legt, að ríkis­stjórnin skuli hafa á­kveðið að stefna fyrir­tækjum í ferða­iðnaði í fjölda­gjald­þrot gjör­sam­lega af á­stæðu­lausu og gera með því sitt til að eyði­leggja þennan vaxtar­sprota vel­megunar í landinu.“

Ekki eru allir sam­mála Jóni og hafa fjöl­margar at­huga­semdir verið skrifaðar við færslu hans. Snúast þær margar um að heilsa fólks verði að vera í fyrsta sæti.

Einn bendir á að ríkis­stjórnin hafi ekki á­kveðið fjölda­gjald­þrot enda stjórni hún ekki gangi CO­VID-19. „Ferða­þjónustan verður bara að taka niður­sveiflunni alveg eins og hún græddi á upp­sveiflunni. Þannig virkar al­vöru kapítal­ismi.“

Jón svarar því til að ráð­stjórnin hafi þarna tekið fram fyrir hendurnar á kapítal­ismanum og eyði­lagt starf­semi hans að á­stæðu­lausu. „Það er það sem skiptir máli og fyrir­tæki í sam­keppnis­rekstri standast aldrei al­gjöra hryðju­verka­á­rás ríkis­valdsins eins og nú er um að ræða.“