Jón fengið nóg af tepruskapnum: Allir skíthræddir við að móðga einhvern

„Er ekki nauðsynlegt að venjulegt fólk rísi gegn þessu rugli,“ spyr Jón Magnússon hæstaréttarlögmaður í færslu á bloggsíðu sinni.

Þar talar lögmaðurinn um pólitískan rétttrúnaðinn sem stundum hefur verið gagnrýndur – einhverskonar ofurviðkvæmni gagnvart orðfræði sem hægt er að túlka sem niðrandi.

Jón spyr hvort ekki sé of langt gengið og vísar meðal annars í orð Rowan Atkinson, heimsþekkts leikara sem er þekktastur hér á landi fyrir að leika Mr. Bean. Sagði Atkinson að það væri fráleitt að ekki mætti gera grín af hverju sem er.

„Trúarbragðahópar, kynþættir, þjóðir og aðrir yrðu að þola græskulaust grínið. Hann sagði að umræðan yrði miklu leiðinlegri og teprulegri ef fólk þyrfti alltaf að passa sig á því að móðga ekki einhvern. En þannig er það í dag,“ segir Jón og bætir við að allir séu að passa sig og uppfullir af ótta við að móðga einhvern minnihlutahóp.

„Afleiðingar eru m.a. að stjórnmálaumræða, sem og önnur almenn umræða er orðin húmorslaus og leiðinleg. Fólk getur átt á hættu að verða ofsótt vegna græskulausra ummæla, ef einhver tekur upp á því að móðgast vegna þeirra og þarf að beygja sig í duftið og biðjast auðmjúklega afsökunar. En ritskoðunin teygir sig stöðugt lengra,“ segir hann.

Jón nefnir að nýlega hafi einhverjir fundið að barna- og unglingabækur Enid Blydon væru uppfullar kynþáttahyggju og útlendingahatri.

„Ævintýrabækurnar og Svaðilfarir hinna fimm fræknu eru því orðnar hættulegar fyrir ungt fólk og ber að fjarlægja. Vinsælu gamanþættirnir Friends eru líka skotspónn teprugangsins og þar hafa handhafar ásættanlegra skoðana komist að þeirri niðurstöðu að þátturinn sé fordæmanlegur vegna kynjahyggju, andúð á samkynhneigðum og gert sé grín að feitu fólki,“ segir Jón og bætir við að það sé orðið vandlifað í henni veröld.

„Feisbók, twitter, google og you tube ráðskast með það sem má segja. Þeir sem fara yfir mörkin eru útilokaðir. Ekki mátti segja að Covid veiran hafi verið manngerð í Kína svo einfalt dæmi sé tekið. Er ekki nauðsynlegt að venjulegt fólk rísi gegn þessu rugli og tali eðlilega og leyfi sér að gera gantast og vera skemmtilegt þó það sé á annarra kostnað svo fremi grínið sé græskulaust. Er ekki heimurinn miklu skemmtilegri þannig?“