Jón Magnússon lögmaður greinir frá því á Facebook-síðu sinni að honum hafi borist skilaboð frá gömlum vini sem hann hafði ekki heyrt í síðan þeir voru báðir „bráðungir menn.“
Að sögn Jóns höfðu þeir ekki átt í neinum samskiptum og hann ekki „fylgst með vegferð hans í lífinu og var hissa en ánægður að heyra frá honum.“
Þá fékk hann önnur skilaboð þar sem spurt var hvort Jón hefði fengið peningasendingu og þá fóru að renna á hann tvær grímur. Jón rannsakaði nánar síðuna sem sendi honum skilaboðin og sá að bakgrunnur hennar var „skurn“ eins og Jón orðar það.
Síðan komst Jón að því að maðurinn lést fyrir rúmum tveimur áratugum.
„Hver gat vitað að við þekktumst? Af hverju gerist þetta og hvaða svindl er í gangi“ spyrn Jón.
„Það er greinilega aldrei of varlega farið“ segir hann að lokum í Facebook-færslu sinni um þetta undarlega mál.