Jón dá­leiðari og töfra­maður slær á gagn­rýnis­raddir: „Dá­leiðsla virkar frá­bær­lega“

Jón Víðis, töframaður og dáleiðari, segir að dáleiðsla geti verið lausn við hinum ýmsu vandamálum. Margir hafa losað sig undan fjötrum óheilbrigðs lífstíls eða náð betri árangri í margvíslegum athöfnum með hjálp dáleiðslu. Þetta segir Jón, annar af tveimur eigendum Dáleiðsluskólans, í viðtali við Mannlíf.

Hann léttist um tugi kílóa með hjálp dáleiðslu: „Það kom mér töluvert á óvart þegar ég áttaði mig á því að dáleiðsla raunverulega virkar, þetta var ekki bara eitthvað trikk. Ég léttist sjálfur um 30 kg án þess að hafa neitt fyrir því. Þegar ég sá þetta virka á sjálfum mér og hvað þetta gerði fyrir fólkið sem var með mér á námskeiðinu, ákvað ég að opna dáleiðslustofu og hjálpa fólki að ná sínum markmiðum. Ég hef tekið á móti fjölda fólks til að létta sig, hætta að reykja eða líða betur,“ segir Jón.

Hann heldur áfram: „Það eru margir sem hafa komið til mín í dáleiðslu og náð góðum árangri í því sem þeir hafa viljað breyta eða ná fram. Það er alltaf gaman að sjá muninn og hvað fólk verður hissa þegar það áttar sig á því að lofthræðslan sem kom alltaf upp þegar farið var út á svalir sé horfin og það sé ekkert mál að fara þangað eða að það sé hægt að láta sér líða vel í flugferð,“ segir Jón.

Hann segir nokkurs misskilnings gæta um dáleiðslu: „Það hefur verið áskorun að þurfa að berjast við fólk sem heldur fram ýkjum og misskilningi varðandi dáleiðslu. Fólki sem kemur óorði á dáleiðslu með yfirlýsingum sem standast enga skoðun. Því dáleiðsla er frábært meðferðarform, hefur hjálpað mörgum og það er hægt er að ná ótrúlegum árangri með dáleiðslu, en hún er ekki endanleg lausn á öllum heimsins vandamálu. Því finnst okkar að fleiri meðferðaraðilar ættu að nýta dáleiðslu í sinni vinnu. Dáleiðsla virkar frábærlega ein og sér og mjög vel samhliða öðrum meðferðarformum.“

Jón vill meina að hægt sé að ná betri árangri í íþróttum með hjálp dáleiðslu: „Íþróttamenn hafa líka verið að koma til okkar til að ná betri árangri í því sem þeir eru að fást við, til að vera einbeittari og ekki einblína á þau vandamál sem þeir sjá fyrir sér, heldur að stefna beint á það markmið sem þeir ætla sér að ná. Í því sambandi má sérstaklega nefna golfara sem geta nýtt sér dáleiðsluna til að vera yfirvegaðri og rólegri þegar spennan eykst og ná þarf fullkomnu höggi,“ segir Jón.