Jón Björn segir af sér í skugga sumarbústaðamáls - Segir aðra ástæðu fyrir afsögninni

Jón Björn Hákonarson sagði af sér sem bæjarstjóri Fjarðabyggðar í gær. Sumarbústaðir hans og fjölskyldu hans eru ekki skráðir og ekki hafa verið greidd gjöld af húsunum. Fréttablaðið greinir frá þessu.

Minnihluti sveitarstjórnar Fjarðabyggðar hefur óskað eftir skýringum á fasteignamálum hans.

Jón Björn, sem er oddviti Framsóknarflokksins, óskaði eftir uppsögn á fundi bæjarráðs í gær og tilkynnti ákvörðunina á samfélagsmiðlum. En í síðustu viku fengu bæjarfulltrúar erindi frá íbúa varðandi sumarbústaðalóðirnar Fönn 1 til 4 í Fannardal, innarlega í Norðfirði, sem eru í eigu Jóns Björns og fjölskyldu hans. Gjöld hafa ekki verið greidd af húsunum heldur aðeins lóðunum.

Jón Björn segir við Fréttablaðið að þetta mál sé ekki ástæðan fyrir því að hann hafi sagt af sér.

„Ég er búinn að vera lengi á þessum vettvangi. Ég hef ekki gætt að mér og er orðinn þreyttur,“ er haft eftir honum.