Jón Bjarnason, fyrrverandi þingmaður og ráðherra, segir að þær fréttir sem birst hafa hér á landi að undanförnu minni um margt á hrundansinn svokallaða frá árunum 2007 og 2008.
Jón heldur úti bloggsíðu og hann tók á dögunum saman nokkrar fréttir sem renna stoðum undir þetta. Bendir til dæmis á fréttir af glæsilegri hátíð Ölgerðarinnar sem haldin var í gömlum kastala í Tékklandi á dögunum og fréttir af ferðasjúkum Íslendingum.
Þór Bæring, annar eigandi ferðaskrifstofunnar Komdu með, sagði við Vísi á dögunum að hálfgerð sprenging hafi verið í að fyrirtæki geri vel við starfsfólk sitt og haldi erlendis á árshátíðir. Hefur fyrirtæki hans skipulagt um tíu slíkar árshátíðir fyrir íslensk fyrirtæki upp á síðkastið og þá séu fleiri ferðir á dagskránni í haust.
Jón bendir á að þá hafi einnig komið fréttir af bönkum, matvælakeðjum, tryggingafélögum og fasteignafélögum sem eru að greiða eigendum sínum út hærri arð en áður. Á sama tíma sé Seðlabankinn að vara við verðbólgu og hvetja fólk til að draga úr neyslu.
„Þetta eru í sjálfu sér eins og endurbirtar myndir frá árunum 2007 og 2008. Lífið er lag,“ segir Jón.