Jón Baldvin Hannibalsson, fyrrverandi sendiherra og ráðherra, krefur fjölmiðlamanninn Sigmar Guðmundsson um 2,5 milljónir króna í bætur vegna ummæla sem féllu í Morgunútvarpi Rásar 2 í janúar 2019.
Þetta kemur fram í frétt Vísis en mál Jóns Baldvins gegn Sigmari og Aldísi Schram, dóttur Jóns Baldvins, verður tekið fyrir á morgun. Jóni Baldvini, Aldísi og Magnúsi Geir Þórðarsyni, þáverandi útvarpsstjóra, er stefnt í málinu.
Stefnan snýr meðal annars að ummælum sem féllu í Morgunútvarpi Rásar 2 þann 17. janúar 2019 og á Facebook-síðu Aldísar í febrúarbyrjun sama ár.
Í viðtalinu sagði Aldís föður sinn meðal annars hafa misnotað stöðu sína sem sendiherra í Bandaríkjunum í persónulegum tilgangi. Hann hafi þannig í nafni embættis síns farið fram á að dóttir sín yrði nauðungarvistuð á geðdeild. Þannig hafi lögregla brotið sér leið inn á heimili Aldísar, ásamt lækni, án þess að nokkuð benti til að þörf væri á því.
Athygli vekur að Jón Baldvin fer ekki fram á bætur úr hendi dóttur sinnar þó hún hafi viðhaft flest þau ummæli sem stefnt er fyrir.