Jón Baldvin sýknaður af ákæru um kynferðislega áreitni

Jón Baldvin Hannibalsson, fyrrverandi sendiherra og ráðherra, var í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun sýknaður af ákæru um kynferðislega áreitni á Spáni sumarið 2018.

Fréttablaðið greinir frá niðurstöðunni.

Jón Bald­vin greindi sjálfur frá því þegar hann var á­kærður fyrir brotið 7. septem­ber 2020, í að­sendri grein í Morgun­blaðinu. Í á­kæru var hann sakaður um að hafa strokið Car­men Jóhanns­dóttur „utan klæða upp og niður eftir rassi“.

Car­men greindi fyrst frá hinu meinta atviki, sem átti sér stað á Spáni, í við­tali við Stundina. Þar sagði hún frá því hvernig Jón Bald­vin á­reitti hana kyn­ferðis­lega á heimili hans og eigin­konu hans í bænum Salobreña í Anda­lúsíu þann 16. júní 2018 að loknum leik Ís­lands og Argentínu í heims­meistara­mótinu í knatt­spyrnu.

Við aðal­með­ferð málsins fór Héraðs­sak­sóknari fram á tvo til þrjá mánuði í skil­orðs­bundnu fangelsi yfir Jóni Bald­vin Hannibals­syni, fyrr­verandi ráð­herra. Jón Baldvin neitaði sök staðfastlega í málinu.