„Sjálfur var ég öskureiður yfir þessari beisku blöndu af óheilindum og dónaskap, sem ekkert okkar átti von á, né taldi sig verðskulda. Og Bryndís var niðurbrotin og ekki mönnum sinnandi næstu dægrin.“
Þetta er meðal þess sem Jón Baldvin Hannibalsson, fyrrverandi ráðherra og þingmaður, skrifar í aðsendri grein sem birtist á vef Fréttablaðsins í dag. Þar fer Jón Baldvin yfir málið gegn honum fyrir héraðsdómi en hann hefur eins og kunnugt er verið ákærður fyrir kynferðisbrot á Spáni sumarið 2018. Aðalmeðferð fór fram fyrir skemmstu og má búast við því að dómur verði kveðinn upp á allra næstu vikum.
Í grein sinni fer Jón Baldvin um víðan völl og lýsir málinu frá hans bæjardyrum. Ljóst er af skrifum hans að honum finnst málatilbúnaðurinn sóun á pappír, tíma og fjármunum skattborgara. Jón Baldvin hefur þvertekið fyrir að hafa gerst sekur um það sem hann er ákærður fyrir og segir raunar að það sé líkamlega ómögulegt að hann hafi gerst sekur um það sem lýst er í málinu.
Hann veltir fyrir sér hvort annarlegir hvatar liggi að baki og hvort konurnar, handhafar ákæruvaldsins, í málinu séu að breyta þeirri ófrávíkjanlegu reglu að ákæra ekki nema yfirgnæfandi líkur séu á sakfellingu. „Eru konurnar – handhafar ákæruvaldsins í þessu máli – að breyta því, í yfirlýstu stríði gegn „feðraveldinu“ svokallaða?
Hann segist sjálfur hafa orðið reiður og Bryndís Schram, eiginkona hans, niðurbrotin í kjölfar málsins.
„Sjálfur var ég öskureiður yfir þessari beisku blöndu af óheilindum og dónaskap, sem ekkert okkar átti von á, né taldi sig verðskulda. Og Bryndís var niðurbrotin og ekki mönnum sinnandi næstu dægrin. Það er svo umhugsunarefni, að fyrr en varði voru gestirnir á bak og burt með allt sitt hafurtask, eins og aldrei hefði staðið til að gista yfir helgina. Innrásinni var lokið. En stóðu gestir okkar einir að verki? Eða stóðu aðrir að baki? Þeirri spurningu er svarað í næstu grein.“