Jón Baldvin sár og svekktur: „Ég virðist vera í starfs- og fram­komubanni“

„Ég skil ekki af hverju menn eru svo lítilsigldir," segir Jón Baldvin Hannibalsson, fyrrverandi utanríkisráðherra, í samtali við Fréttablaðið í dag.

Blaðið greinir frá því að íslensk stjórnvöld og Háskóli Íslands hafi ekki boðið Jóni að vera við skipulagningu hátíðarsamkomu sem fram fer í vikunni með forsetum Eystrasaltsríkjanna um sjálfstæði þjóðanna þriggja. Boðað er til fundarins næsta föstudag til að fagna þremur áratugum af stjórnmálasambandi eftir að Ísland varð fyrst ríkja til að viðurkenna sjálfstæði Eistlands, Lettlands og Litháens.

Jón Baldvin lék veigamikið hlutverk í sjálfstæðisbaráttu ríkjanna og gerði Sighvatur Björgvinsson, fyrrum samflokksmaður Jóns Baldvins, athugasemd hjá forsetaembættinu um að Jóni hafi ekki verið boðið. Svo fór að Jón fékk boðsbréf fjórum dögum fyrir viðburðinn.

Sighvatur er ósáttur við málið og segir það ólíðandi að íslensk stjórnvöld komi svona fram við mann sem hefur verið sýknaður af dómstólum af þungum sökum.

„Honum er útskúfað frá viðburði um sjálfstæði ríkja sem hann átti stærstan persónulegan þátt í að fengu sjálfstæði. Ríkin sem eiga þarna fulltrúa eru margbúin að veita Jóni æðstu heiðursmerki,“ segir Sighvatur.

Jón Baldvin segir við Fréttablaðið að hann hafi ekki vitað af þinginu fyrr en hann fékk boðsbréf í tölvupósti í fyrradag. Jón er staddur á Spáni og getur ekki þegið boðið með svo skömmum fyrirvara.

Jón bendir í Fréttablaðinu á að HÍ, sem stendur að viðburðinum, sé sami skóli og setti hann í starfsbann árið 2015. „Ég virðist vera í starfs- og fram­komubanni.“