Jón Bald­vin á­kærður fyrir kyn­ferðis­brot

Jón Bald­vin Hannibals­son, fyrr­verandi ráð­herra og sendi­herra, segir að honum hafi borist á­kæra frá sak­sóknara vegna meints kyn­ferðis­brots. Jón Bald­vin upp­lýsir þetta í að­sendri grein í Morgun­blaðinu í dag.

„Sakar­efni er meint kyn­ferðis­brot á mínu eigin heimili gagn­vart gest­komandi konu. Nánar til­tekið á sakar­efnið að vera að hafa „strokið utan klæða upp og niður eftir rassi“ við­komandi. Þetta á að hafa gerst í aug­sýn gest­gjafans, konu minnar, og annarra gesta. Trú­legt, eða hitt þó heldur! Þetta sætir ó­neitan­lega furðu af þeirri ein­földu á­stæðu, að þetta er með öllu til­hæfu­laust. Hreinn upp­spuni. Þetta hafa trú­verðug vitni vottað við rann­sókn málsins, sem hefur tekið lög­reglu­stjóra­em­bættið bráðum tvö ár að rann­saka. Það er von að spurt sé: Á hvaða leið er á­kæru­valdið?,“ segir Jón Bald­vin í grein sinni.

Car­men Jóhanns­dóttir, konan sem kærði Jón Bald­vin, lýsti at­vikinu í við­tali við Stundina í árs­byrjun 2019. Hún sagði:

„Svo sat vin­kona þeirra á milli þeirra og ég og mamma. Ég sat næst honum. Þegar ég stóð upp á einum tíma­punkti og fór að skenkja í glösin, þá bara gerði kallinn sér lítið fyrir og byrjaði að strjúka á mér rassinn. Og ekkert bara rétt að­eins, heldur upp og niður strjúka á mér rassinn.“

Eins og að framan greinir harð­neitar Jón Bald­vin að hafa brotið gegn konunni og birtir hann yfir­lýsingu frá gesti í um­ræddi boði, sem var í húsi Jóns Bald­vins og Bryn­dísar Schram á Spáni, máli sínu til stuðnings. Þá birtir hann yfir­lýsingu frá eigin­konu sinni, Bryn­dísi Schram.

„Þetta er seinasta út­spilið í skipu­lagðri að­för að mann­orði mínu og Bryn­dísar, sem hefur bráðum staðið yfir í tvo ára­tugi. Fimm sinnum hafa verið verið bornar fram kærur. Fimm sinnum hefur þeim verið vísað frá, þar sem til­efni til sak­fellingar fundust ekki,“ segir Jón Bald­vin meðal annars.