Jón Atli í sótt­kví eftir CO­VID-smit í Há­skóla Ís­lands

Jón Atli Bene­dikts­son, rektor Há­skóla Ís­lands, er kominn í sótt­kví á­samt tveimur öðrum starfs­mönnum í aðal­byggingu skólans. Á­stæðan er sú að um helgina var stað­fest CO­VID-19-smit hjá starfs­manni í aðal­byggingunni.

Jón Atli sendi orð­sendingu til nem­enda og starfs­fólks skólans þar sem þetta kom fram.

„Gripið hefur verið til allra nauð­syn­legra ráð­stafana í sam­starfi við smitrakningar­teymi al­manna­varna og sótt­varna­læknis til að hindra út­breiðslu smitsins og gæta þannig fyllsta öryggis starfs­fólks og nem­enda. Smitrakningar­teymið hefur haft sam­band við alla sem þurfa að fara í sótt­kví og eru það rektor og tveir aðrir starfs­menn í Aðal­byggingu. Starfs­stöðvar þeirra sem eru í sótt­kví hafa verið sótt­hreinsaðar ræki­lega,“ segir í orð­sendingunni.

Þá segir að þetta sýni að þótt ný­smitum fari til allrar hamingju fækkandi innan­lands sé far­aldrinum langt í frá lokið.

„Ég vil því hvetja ykkur öll, kæra sam­starfs­fólk og nem­endur, til að nota raf­ræna kosti til fundar­halda og fylgja reglum sótt­varnar­yfir­valda í einu og öllu. Gætum á­fram fyllsta hrein­lætis og höldum að minnsta kost eins metra lág­marks­bili á milli okkar. Ef við finnum fyrir minnstu ein­kennum eigum við í öllum til­vikum að halda okkur heima. Einnig vil ég hvetja starfs­fólk til að nota fjar­fundi eins og kostur er til að lág­marka smit­hættu,“ sagði hann meðal annars.