Jón Atli Árnason, klínískur prófessor í gigtarlækningum í Wisconsin í Bandaríkjunum, kveðst ekki eiga von á því að neitt breytist varðandi kórónuveirufaraldurinn næsta árið.
Jón Atli er í viðtali í nýjasta tölublaði Læknablaðsins þar sem hann ræðir meðal annars um störf sín sem læknir í Bandaríkjunum á þessum erfiðu tímum.
Jón Atli hefur sloppið við COVID enda hefur hann verið með skurðgrímu fyrir andlitinu í að verða sex mánuði.
„Kunningjar mínir hafa veikst en hafa náð sér aftur. Sjúklingar mínir líka. Ég hef hins vegar áhyggjur af afleiðingum faraldursins, bæði hvað varðar heilsu fólks, atvinnustarfsemi og efnahag. COVID hefur sett flest úr skorðum,“ segir hann í viðtalinu.
Þegar hann er spurður um hvaða væntingar hann hafi til næsta árs segir Jón Atli að gott bóluefni þurfi til að ástandi batni.
„Þó það komi vonandi brátt mun taka marga mánuði að bólusetja nógu marga til að það skili árangri. Ég býst því ekki við að neitt breytist næsta árið. Faraldurinn hefur afhjúpað þá veikleika sem eru í heilbrigðiskerfinu og stjórnkerfinu, bæði hér og á Íslandi. Þegar allt verður um garð gengið vona ég náttúrulega að við verðum öll reynslunni ríkari og berjum í brestina, en því miður er ólíklegt að stjórnmál batni neitt að ráði fyrr en stjórnmálamenn læra að fara eftir leiðbeiningum fagfólks.“