Jón Ás­geir segir þetta á­stæðuna fyrir því að er­lendir aðilar vilja ekki fjár­festa á Ís­landi

Jón Ás­geir Jóhannes­son, stjórnar­for­maður Skeljar, segir að það sé ein­föld á­stæða fyrir því fjár­festing er­lendra aðila á Ís­landi sé mun minni en á hinum Norður­löndunum. Það sé einkum vegna eins þáttar; ís­lensku krónunnar.

Þetta kemur fram í nýrri árs­skýrlu Skeljar en Við­skipta­blaðiðgreinir frá.

„Það er ekki vegna þess að það sé skortur á afli, þekkingu, hug­viti eða dugnaði í ís­lensku at­vinnu­lífi, heldur er skýringuna að finna í ís­lensku krónunni, sem er versti ó­vinur at­vinnu­lífsins og fólksins í landinu - en meira um það síðar,“ skrifar Jón Ás­geir í skýrslunni.

Jón vonast til þess að Skel geti laðað til sín inn­lenda sem og er­lenda fjár­festa til að fjár­festa í ís­lensku at­vinnu­lífi.

Hann bætir þó við að það sé til­raun að skrá fé­lagið á Ís­landi og er hann ekki viss um að það sé rétt á­kvörðun.

Árið 2022 hjá Skel var afar við­burða­ríkt en fé­lagið er nú orðið full­burða fjár­festinga­fé­lag.

„Þegar litið er til baka er ljóst að veg­ferðin var viða­meiri en upp­haf­lega var gert ráð fyrir. Með mikilli þraut­seigju starfs­manna náðist að skera á sam­ofna strengi milli þeirra. Um mitt ár voru fé­lögin farin að geta horft fram á veginn með skýra stefnu að verða hvert og eitt best á sínu sviði.

Ég leyfi mér að full­yrða að vel hafi tekist til og náðst hafi að hrista sofanda­háttinn af þeim, sem ein­kenndi þessar rekstrar­einingar að á­kveðnu leyti meðan þær voru allar sam­ofnar.“

Skel hagnaðist um 17,5 miljlarðar króna í fyrra. Hægt er að lesa um­fjöllun VB.is hér.