Jón ásgeir náði ekki kjöri í stjórn haga

Allir fimm frambjóðendurnir sem tilnefninganefnd Haga hf. mælti með í aðdraganda hluthafafundar í dag náðu kjöri í stjórn Haga. Þrír aðrir voru í framboði og náðu ekki kjöri, þar á meðal Jón Ásgeir Jóhannesson fjárfestir. Vísir.is greinir frá.

Frambjóðendurnir fimm sem náðu kjöri í stjórn voru Erna Gísladóttir, Davíð Harðarson, Eiríkur S. Jóhannsson, Katrín Olga Jóhannesdóttir og Stefán Árni Auðólfsson. Að hluthafafundinum loknum hélt ný stjórn stjórnarfund, þar sem Erna var kjörin formaður stjórnar og Davíð var kjörinn varaformaður stjórnar.

Ingibjörg Pálmadóttir, eiginkona Jóns Ásgeirs hefur að undanförnu aukið hlut sinn í Högum og á nú 4,3 prósenta hlut í smásölurisanum. Auk Jóns Ásgeirs náðu Kristján Óli Níels Sæmundsson, fjárfestir og bifreiðastjóri, og Sandra Hlíf Ocares, lögfræðingur og sjálfstætt starfandi ráðgjafi ekki kjöri.

Í samtali við Markaðinn segir Jón Ásgeir það ljóst að það sé á brattann að sækja fyrir fólk að komast í stjórn sem ekki kemst á lista tilnefningarnefnda. „Ég velti því fyrir mér hvort það er af hinu góða, og hvort verið sé að skerða rétt smærri hluthafa?“, segir Jón Ásgeir.