Sjónvarpsmanninum Jóni Ársæli Þórðarsyni og RÚV hefur verið stefnt öðru vinni vegna þáttarins Paradísarheimt sem vakti mikla athygli þegar hann var sýndur á RÚV fyrir nokkrum misserum.
DV greinir frá því að Magnea Hrönn Örvarsdóttir hafi stefnt Jóni Ársæli og RÚV. Í frétt DV segir að um sé að ræða sambærilegt mál og mál Gyðu Drafnar Grétarsdóttur en Jón Ársæll og RÚV voru í fyrra dæmd til að greiða henni eina milljón króna í bætur vegna umfjöllunar í þættinum.
Herma heimildir DV að málið snúist um birtingu mynda og viðtals án leyfis. Viðtölin voru tekin í nokkrum lotum og var í að minnsta kosti einu tilviki ekki haft samráð við Magneu. Magnea hafi beðið um að viðtölin yrðu ekki birt í sjónvarpi en ekki hafi orðið við beiðninni.
Fyrirtaka í málinu verður í Héraðsdómi Reykjavíkur á föstudag.
Nánar er fjallað um málið á vef DV.