Jón ætlar ekki að þiggja boðið - Heldur að hann megi það ekki

Í gær var greint frá því að at­hafna­maðurinn Haraldur Þor­leifs­son hefði boðist til þess að fljúga Jóni Gunnarssyni, dómsmálaráðherra, til Grikklands og sýna honum hvernig aðstæður eru þar.

Í samtali við Fréttablaðið segist Jón ekki hafa heyrt af boðinu. Auk þess segist hann efast um að hann megi þyggja slíkt boð.

„Nei ég hef ekki séð neitt boð um það. Ég held að al­mennt boð til ráð­herra utan úr bæ sé ekki leyfi­legt að taka við. Ég held að það séu stífar reglur um það. En ég hef ekki séð þetta boð,“ sagði Jón við Fréttablaðið.