Jólaóróinn í ár er stjarnan sem skín

Jólaóróinn frá George Jensen í ár er kominn í verslanir og er hannaður af Sanne Lund Traberg. Í ár er það gull stjarnan sem skín, falleg lögun og fangar augað. Óróanum fylgir bæði sérstakur ljósblár borði ásamt klassíska rauða borðanum sem ávallt hefur verið til staðar og flaggar ártali hvers óróa.

Frá árinu 1984 hefur Georg Jensen gefið út jólaóróa á hverju ári til að fagna jólunum og með tímanum hefur óróinn orðið ein vinsælasta og best selda jólavara í Skandinavíu. Jólaóróinn er skemmtileg söfnunarvara sem finna má á mörgum íslenskum heimilum og eiga margir óróana frá upphafi og hengja upp stoltir safnið sitt um hver jól.

Saga Georg Jensen hófst árið 1904 þegar hinn 38 ára gamli silfursmiður Georg Arthur Jensen opnaði verkstæði sitt í hjarta Kaupmannahafnar á Bredgade 36. Georg Jensen merkið er í dag þekkt fyrir hágæðahönnun og framleiðir það vörur eftir heimsfræga hönnuði eins og Arne Jacobsen, Aldo Bakker, Ilse Crawford og Verner Panton.